..:: Ragga::..

..::Þora til að skora::..

29.04.2007 22:18:10 / raggaha

*Love is in the air...úú*

Helgin liðin fyrir bí og ný vika að hefjast.

Þó er hún styttri en flestar vikur ársins út af 1. maí er frídagur sem er að sjálfsögðu mjög gott mál...

Það er samt spurning af hverju þessi vika muni einkennast af....ást, sorg, gleði, hamingju, pirringi, frekju, drykkju, svikum, hlátri.....maður veit aldrei hvað morgundagurinn ber í skauti sér þess vegna er betra bara að spá ekkert í honum.....

...Ísland og íslendingar einkennast að mér finnst nú til dags að þeir eru að hafa áhyggjur yfir þessu og hinu sem mun eða mun ekki gerast, sem kemur út í mikilli streitu og stressi í hinu daglega lífi. Tek það fram að ég er engin undartekning. Reykinga fólk reykir og reykir og finnst mér það oft vera í kappi við sígarettuna og hvað þau ná að reykja margar sígarettur á dag, á endanum fær það krabbamein og hugsanlega deyr. Já það er sorglegt, en reykinga fólk takið þetta til íhugunar....

Við turtildúfurnar sýndum á Ræktun 2007 í gær og gekk það líka svona ljómandi vel fyrir utan það að klaufinn ég náði ekki að leggja merina mína í gegnum höllina....súrt. Eftir sýninguna var svo haldið heim á leið og stokkið í tangó-gallan og svo var rauða þruman látin hafa það upp á ingólfshvol....og smá slett úr klaufunum. Kellan var þó bara á bíl og var fegin í enda kvöldsins að geta bara komist heim án vandræðagangs....það er nefninlega BARA þægilegt að vera edrú á bíl. Prófið það :haha:

-Hafið það gott þangað til næst, og ekki kvarta yfir smáatriðum lífið er of stutt til þess-

- Ciao

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.04.2007 20:48:21 / raggaha

*Hola*

Gott kveld......

Ég er búin  að vera alveg skuggalega léleg að blogga upp á síðkastið....er of upptekin af lífinu þessa dagana :D En róleg helgi framundan eða allavega róleg djammhelgi, við Hansi erum samt að spá í að fara á Landsliðs ístöltið sem er haldið í Skautahöllinni í Laugardal annað kvöld. Þar munu mæta sterkustu hestar landsins og berjast um 1 sætið.....spennnandi :o

Páskarnir voru góðir....byrjaði þá reyndar með að taka þátt í páskatölti upp á Ingólfshvoli þar sem ég ópent skeit upp á bak....já  ónó.....8| Síðan átti Hansi minn afmæli á föstudaginn langa. Þannig við skelltum okkur á fjöruborðið ásamt þeim Halldóru og Kidda. Jammí jamm hvað humarsúpan og humarinn voru góð mæli klárlega með fjöruborðinu :) Síðan var stefnan sett heim til Annie and Charlie á Austurveginum í fyrirpartý fyrir ball sem var á Ingólfhvolnum, en hann Magni vinur minn í á Móti sól var að syngja.....mikið stuð skal ég segja ykkur.

Kellan er að spá í að skella sér svo kannski í háskólann í haust í líffræðina...þá í þeim tilgangi sem undirbúningur fyrir dýralæknanám. Kannski. Ragga dýalæknir....ja hljómar ekki sem verst. En eins og hún Gulla Gullmoli sagði að þá er það meira en að segja það að fara í dýralæknanám, svo að maður þarf að vera 100% viss þegar lagt er á stað í svoleiðis. Er þess vegna búin að sækja um vinnu á dýralæknastofunni í Mosfellsbænum, og er hugsanelga komin með vinnu þar. Sem gæti hjálpað manni að sjá hvort þetta henti manni eða ekki :haha:

Jæja ætla að fara að taka video.....guð minnst á video ég fann kvikmyndarsálufélaga minn um daginn, ég sá The Holiday og það var ást við fyrstu sýn ekki aftur snúið....klárlega besta mynd sem ég hef séð lengi....mæli endregið með henni :D

-Raggs-

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

27.02.2007 23:48:12 / raggaha

**Eldsteikt**

 

Jaha.....

Lífið hefur sinn vanagang....hver sem hann nú er.....

Hef ákveðið að byrja í Boot Campi þann 12 mars og mun ég þa þurfa að vakna klukkan 06.30 þrisvar sinnum í viku 8|

Kellan skellti sér á skrall á laugardaginn. Byrjaði daginn á því að "vera með" á vetrarleikum Harðar. Endaði þó samt í úrslitum, kom bara á óvart þar sem ég fékk lánaðann hest hálftíma áður en mótið byrjaði. Síðan var afmæli hjá henni Habbý minni um kvöldið, einum of mikið stuð. Ég svoleiðis líka meikaði það allsvakalega í SINGSTAR !! OMG hvað það var skuggalega gaman....held að ég hafi unnið alla nema hana Dóru stóru einu sinni....það var líka af því að ég þrufti að syngja kallinn...sem var frekar erfitt þar sem ég er kona :$ Seinna um kveldið fórum við síðan á Karlakvöld hjá Herði. Mikið af köllum og auðvitað konum eftir 12....maður fékk að snúast nokkra hringi á dansgólfinu í kallafans......mamma dró mann svo heim að sofa ekki seinna en 3....sem bjargaði sunnudeginum....:D

Jæja þá er það bara næsta helgi....laugó....afmæli hjá Steinunni frænku og svvoooo Kvennakvöld hjá Fáki þar sem stefnan er sett á ballið eftir....allir sem eru game með eru velkomnir...

-Adios

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

19.02.2007 22:25:06 / raggaha

**Svellköld**

Konudagur í gær....ég fékk ekki mikið fyrir að vera kona. Ja nema frá sjálfri mér...keypti mér fallegustu stígvél í geimi :lol: Annars var kallinn minn svo sætur á Valentínusardaginn og gaf mér svo sæt blóm svo að ég ætla ekki að kvarta.

Ég skellti mér á Kvennaístölt á laugardaginn í skautahöllinni í Laugardal. Djö er ógeðslega gaman að ríða á ís....adrenalínið fór allavega vel af stað...þá á jákvæðan máta :D. Ég skráði mig í 1 flokkinn sem er sterkastur og gekk líka svona glimrandi vel....komst í úrslit og fékk því að fara AFTUR út á ísinn. Er ekki frá því að henni Ösp minni hafi líka fundist þetta bara mjög gaman. Það er ótrúlegt hvað sum dýr eru miklir karakterar...er alveg viss um það að hún Ösp er mjög með á því hvað er að gerast í kringum hana og hvað ég segi og vill henni.....já þið getið sagt að ég sé biluð en ég er ekki frá því að þetta sé satt hjá mér....8|

Annars er TV dagur hjá mér núna....OC klukkan átta....Herose klukkan níu og svo er ég að horfa á CSI núna (þar sem ég er að undirbúa tilvonandi starfsferil minn).....oooo bara notalegt á mánudögum....8)

Vona að þið hafið það eins notó og ég núna....þangað til næst.....

-Raggs out

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

11.02.2007 17:39:57 / raggaha

-Helgin-

 

Þessi fallegi dagur……

 

Telpubústaður er liðinn, en hann var núna um helgina. Ég og hann Hans Þór fórum reyndar ekki fyrr en í gær vegna sveitastarfa og einnig því að við þurftum að fara í bæinn á föstudagskvöldið til að þvo þvott og horfa á x-faxtor. En vandinn er sá að þvottavélin hér á Kvistum er biluð og erum við þess vegna eins og fólkið í gamla daga, verðum að hafa svona einn þvottadag í viku J. Svo er vinnufélagi minn hún Jóhanna að keppa í x-factor þannig við horfðum á það á meðan.

 

Í gær var ístölt á Stokkseyri þar sem Hansi lenti í úrslitum og endaði svo í 6 sæti, ég hefði alveg verið til í að keppa þarna, mjög skemmtileg stemmning, ísinn og veðrið frábært. Gæti ekki verið betra, svo stefnir maður líka á kvennaístöltið í skautahöllinni í Laugardal næstu helgi svo að það hefði ekki verið verra að geta æft sig aðeins. En ég er ekki í Sleipni svo að ég var ekki með. En þeir sem hafa ekkert að gera næstu helgi mega endilega koma og vera í klappliðinu mínu á laugardaginn….:)

 

Annars var telpubústaðurinn fínn, mikið sungið í singstar með mismiklum fögnuði. Ég get alla vega sagt ykkur að ég og Lísa vorum klálega að rústa strákunum okkar hehe ….

Síðan voru sagðar nokkrar góðar sögur, og sló Sara öll met þegar hún tók söguna um fatlaða manninn….ég hef ekki hlegið svona lengi. Gátur og galdrar voru líka vinsæl og ætla ég að setja eina gátuna hérna inn á og vil ég vinsamlegast biðja þá sem vita svarið að segja það ekki J

 

-         Sá sem smíðar það selur það

-         Sá sem kaupir það notar það EKKI

-         Sá sem notar það veit ekki af því……

 

Jæja núna geti þið velt þessu fyrir ykkur í nokkra daga þangað til þið fattið þetta hehe…..

 

Se ya…….

    

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

04.02.2007 22:55:04 / raggaha

*jorilohuhuhu*

Jæja þá.....

Telpuhittingur í gærkveldi.....fyrsta sinn á árinu 2007 sem að ég hitti telpurnar mínar. Það var voðalega ljúft, Marín eldaði dýrindismat og síðan var spjallað og drukkið (reyndar ekki ég því að konan var á bílnum) fram eftir kveldi þangað til að stúlkurnar ákváðu að fara í bæinn að tjútta. Sveitastelpan fór þó bara heim þá vegna þreytu eftir erfiða vinnuviku og nýtti daginn í dag til útreiða í sveitinni og snjónum ogggg góða veðrinu, þvílít sem að hrossin verða fersk og skemmtileg í svona smá snjó...oooo svo gaman :D ...næstu helgi verður einnig telpuhelgi þar sem það er bústaða ferð á Laugarvatn. Reyndar ætla ég að bara að vera laugardaginn því að eitthvað þarf að sinna hestunum líka....

...annars er lítið i fréttum. Ég fékk reyndar að fljúga niður stigann hérna heima áðan með miklum látum. Og ég get sagt ykkur það að það var sko EKKI þægilegt!! Hann er mjög brattur og með mjög stuttar tröppur og ég var auðvitað að flýta mér niður eins og vanalega, og flaug líka svona svakalega alveg efst í stiganum. Hansi greyið öskraði held ég hærra en ég þar sem honum brá svo við lætin. Síðan endaði með dynk á gólfinu og í þvílíku sjokki. Olboginn var smá meiddur en jafnaði sig fljótt....þannig að það var nú hægt að hlægja aðeins af þessu eftir á. Og sem betur fer fór betur en á horfðist 8|

...hvað daglega lífið varðar að þá er ekkert spes að gerast, var reyndar að byrja í dansi. Það er ógeslega gaman :haha: Erum að læra dans eftir Gwen Stefani laginu "wind it up" þar sem hún jóðlar líka svona svakalega vel .....mjög skemmtilegt. En ég þarf nú að fara að hreyfa mig eitthvað meir þar sem það er bara einu sinni í viku. Gæti jafnvel verið að maður skelli sér bara í boot camp.....eða jafnvel fit pilates.....

- Luv Ragga Ha


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.01.2007 21:53:45 / raggaha

**Djö...helv...ands..**

Ef ég er ekki BARA svekt núna að þá veit ég ekki hvað !! Þvílíkur leikur og þvílík spenna. Ekki það að við höfum eitthvað verið að spila neitt svakalega vel, en þeir voru svona í betri kanntinum fannst mér. Snorri Steinn var í svona líka þessu banastuði og stóð sig með stakri prýði. Enda valinn maður leiksins. En ekki getur hann unnið leikinn einn….ónei….vörnin líka ónýtt…..ææææ þetta er einum of svekkjandi til að vera að skrifa um það. Ég er bara við það að fara að gráta. Erum við svona lítil...eða hvað ? Smáfólk á Íslandi.....8|


» 1 hafa sagt sína skoðun

27.01.2007 23:57:24 / raggaha

**Hey þú ógeðslega töff ég er að tala við þig**

Mikið svakalega eru íslendingar duglegir við að semja alveg óhemmilega leiðinleg lög sem þeir síðan reyna að troða upp á Evrovisionkeppnina fyrir hönd okkar íslendinga og síðan kúka upp á bak....en eins og hann Palli Óskar vinur minn sagði í kvöld að þá eru 10 % af þessum lögum ágæt svo að vonandi fara þessi 10 % fyrir hönd okkar íslendinga. Ekki það að ég sé einhver Evrovision FAN en þá datt ég óvart inn í undankeppnina sem var í sjónvarðinu áðan. Verð nú samt að segja að hún Ragnhildur Steinunn nafna mín er engin smá pæja, hún er náttlega bara flott 8) En hún var kynnir þar í kveld....en út í aðra sálma...

.....í gær kom hún Jóhanna elskan mín í svokallaða surprize heimsókn. Mikið var gott að sjá stúlkuna. Hún var bara mætt upp á Kvista þegar ég kom heim úr vinnunni. En þar sem ég átti eftir að ríða út þá sendi ég hana bara í verslunarleiðangur á SELFOSS....já Selfoss. Sko ég verð að játa eitt að ég hef alltaf litið á Selfoss sem algjörann sveitatúttubæ. Og hélt því að það væri ekkert spes að versla td föt þar jafnvel skó, en ég verð að segja að ég hafi haft þennan litla bæ að algjörlega rangri sök.....ég fordæmdi á háu stigi. En málið var það að ég droppaði inn í Kjarnan á fimmtudaginn í hádegismatnum og viti menn ég fann þar búð sem að var líka bara svona ljómandi fín. Þar var flest allt á 80 % afslætti og bara mjög fín föt. Ég endaði með að labba út með einar gallabuxur og 4 peysur á aðeins 4.300 krónur.....já geri aðrir betur !! Svo þannig að meðan ég sveitatúttan sinnti sveitastörfunum þá sendi ég bara hana Jóhönnu mína á útsölur og ég held nú að konan hafi getað verslað sér eins og einn leddara og meira til. Kvöldið endaði síðan í alsherjar veislu á Kvistum með taco-i, ís og ávöxtum jamíjamíjamm :haha:

....nú liggjum við Hansie boy afvelta hérna í Mosfellsbænum eftir dýrindisveislu hjá uppáhaldstengdó. Verð nú að segja að það var gott að komast aðeins í Mosóinn minn eftir 3 vikna samfelda dvöl í sveitinni...þó svo að sveitin sé einnis fín.

Hef þetta ekki lengar að sinni....:lol:

- RH


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.01.2007 21:04:20 / raggaha

''Framtíðin**

Það er sko ROK úti núa, já sannkallað íslenskt veður í hnotskurn. Svo þurfum við auvitað að vera stödd í einu mesta rok svæðinu í Ölvusinu svo að ef það er rok að þá er defenatly rok hjá okkur....ohhh.....

Ég er búin að vera mikið að spá í hvað maður muni gera í framíðinni, og jeminn hvað það er erfitt að ákveða sig....eða bara finna hvað manni langar að gera yfir höfuð. Nokur dæmi sem koma til greina....

- Hólar: Dýrt nám, eða kannski ekki námið sjálft en að búa í Hjaltadal getur víst verið helvíti dýrt. Það er líka spurning hvort þetta borgi sig að vera að fara þarna...þetta er mjög gaman, en hvað á að gera þegar maður er búinn?? Þetta eru allt í allt 3 ár og þriðja árið er það reiðkennarinn sem maður myndi ekki taka strax. Laun.....ekki góð.

- Listaháskólinn: Arkitektur/Grafískur hönnuður, Dans, Söngur.....ja allt sem mér finnst gaman en stóra spurningin er hvort manni langi til að hafa þetta að atvinnu eða bara hobbýi.....dýrt nám sem mjög sennilega borgar sig. Laun: Örugglega mjög fín.

- Verkfræði: Málið er það að ég eiginlega veit ekki alveg hvað verkfræði er. Eða í svona stórum dráttum veit ég það...en á eftir að lesa smáa letri. Gæti verið spennandi. Laun: Mjög góð að ég held.

- Dýralæknir: Eitthvað sem mig hefur langað að læra síðan ég var lítil, en langt nám og í DK svo að þá þyrfti maður að fórna hrossunum á meðan. Veit ekki hvort maður myndi þola það. Laun: Mjög góð :)

- Tannlæknir: Eitthvað sem ég vildi óstjórnlega mikið læra...en er með fóbíu fyrir sýklum á öðru fólki og get ekki hugsað mér að vera að kafa upp í kjaftin á alls konar fólki. Laun: Ég myndi verða ******* mútli milli á því....en....nei...

- Flugmaður: Eitthvað sem ég myndi líka verða verulega rík af en get hreinlega ekki sigrast á minni ískyggilegu flughræðslu sem hefur hrjáð mig mín eldri ár....

- Umhverfisræðingur/Veðurfræðingur: Hljómar þurt en gæti alveg verið gaman. Laun: ??

- Rannsóknarlögreglu kona: Gæti vel husast, en væri þá til í svona action eins og er í CSI þáttunum. Held að ég þyrfti að flytja til USA, örugglega leiðnlegt að vinna við það á Íslandi....aldrei tekið á neinu né neinum. Held nú samt að einhver hafi verið með þá uppástungu um daginn að stofna sérsveit....hljómar spennandi ;)

Jæja....ég hef hreinlega ekki hugmynd. Hjálp vel þegin og ef einhver á í sama vanda að á slái þið bara á þráðinn..ég er alltaf opin :haha:

- OUT


» 4 hafa sagt sína skoðun

16.01.2007 22:14:56 / raggaha

**Long time..no see**

Hola amigos.....

Guð já það er langt langt langt síðan Ragnhildur Haralds hefur sest niður við tölvuna yfir höfuð og hvað þá bloggað, vandin er sá að talvan í sveitinni fór í einhverskonar verkfall og neitaði í tíma og ótíma að leyfa okkur að komast inn á netið :S urrr.....

En jaaa....lítið að frétta úr sveitinni, dagur minn einkennist af því að mæta í vinnuna og ríða út eftir vinnu...fara síðan í heit bað eftir langan og kaldan dag og láta drenginn minn nudda úr mér vöðvabólguna, hann er svo hlýðin þessi litla elzka....eða svona nær oftast hehe :haha:. Annars eru Öspin mín og hún Villa komnar á járn og vetrarþjálfunin byrjuð.

Ótrúlegt hvað maður hittir mikið af ólíku fólki í svona búð.....nóg af sveitaliði sem eg er að fýla í tætlur. Þannig að ég get ekki sagt annað en að ég sé bara þó nokkuð sátt í vinnunni. Einnig ef ykkur vantar heitasta slúðrið á suðurlandinu þá getiði hring í mig ég ætti að vera með það sjóð heita ;)

Konan er einnig byrjuð að elda. Já er ekki að trúa því sjálf. Er nú búin að vera bara helvíti holl....búin að elda fisk 2 sinnum  og hafa alltaf salat og svona voða hollt þó að karlinn minn vilji ekki sjá það að vera að éta grasið frá greyið dýrunum. Ég þarf nú bara að fara að halda matarboð í bráð og láta taka út matarhæfleika mína, tékka hvar ég stend ;)

.....ennn á laugardaginn er svo þorrablót hérna í sveitinni á Básnum (næsti bær við í göngu færi....mjög hentugt) og verður allsherjar dansiball eftir, ef einhver vill joyina þá bara látið mig vita ég er opin fyrir öllum :)

Hef þetta ekki lengra að sinni....hafið það gott og elskið náungan....

- Raggie Doll


» 5 hafa sagt sína skoðun

31.12.2006 13:32:08 / raggaha

**Gamlársdagur**

- Þá er árið að vera búið. Aðeins 11 klukkutímar og 19 mínútur eftir.

- Vona að nýja árið muni verða ykkur gæfuríkt og gott.

- Gleðilegt nýtt ár yndin mín

- Raggie out


» 4 hafa sagt sína skoðun

29.12.2006 04:28:38 / raggaha

*Stelpan flutt í sveitina*

Jæja, þá er maður fluttur. Allavega í bili úr mosó. Er reyndar heima þar núna, kom bara til að sækja restina af draslinu og til að fara í ikea að kaupa dótarí sem vantaði í herbergið, en annars er maður hálf fluttur í burtu :cry: Ég sem er þessi "heimakæra týpa", tek alltaf minn tíma í að aðlagast hlutunum. Þó svo að mig langi að flytja í sveitina og hafi verið farin að hlakka til að fara þangað að þá lít samt til baka með smá söknuði þegar ég keyri frá mosó. En hey það er ekki eins og ég sé farin for good, mér finnst líklegt að ég muni vera fastur gestur hér í vetur....

.....annars rétt upp hend sem var lasin um jólin !!! ÉG !! Get bara sagt ykkur að það var leiðinlegt. Ég var frekar slöpp á aðfangadag, en samt ekkert lasin þannig séð. Síðan vakna ég upp á jóladag með 40 stiga hita og allt í fokki. Ég missti af öllum jólaboðum (nema því sem var heima hjá mér), svo að ég fékk voða lítið að borða gott á jóladag, enda hafði ég enag lyst. Sem er kannski bara allt í lagi....æ maður treður oft svo suddalega í sig af þessum jólamat að maður fær alveg ógeð 8| En veikindin enduðu vel, ég var orðin hitalaus um kvöldið. En treysti mér samt ekki til að fara á ball annan í jólum á selfossi eins og planið lá....en viti menn ég fékk miða frá elskunni minn á Sálina og Gospel 30 des....ooo mig hlakkar svo til :haha: Svo er víst stefnan sett á ball á morgun í hveró...víst eitthvað árlegt sölvaball...jeeeeiii hlakka svo til að fara að tjútta....:lol: Allir velkomnir með...

- LATER


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.12.2006 00:42:30 / raggaha

**Hátíð ljóss og friðar**

Vildi bara óska ykkur elskunum Gleðilegra jóla og farsældar á nýja árinu. Vonandi eigi þið eftir að hafa það rosalega gott um jólin í faðmi fjölskyldunnar.

Sjáumst eiturhress á gamlárs eða já annan í jólum ef eitthvað skrall verður þá. Svo auðvitað á nýja árinu...2007 :D

-Ástarkveðjur Ragga Ha


» 5 hafa sagt sína skoðun

21.12.2006 18:28:15 / raggaha

**Óveður**

Hreinræktað óveður er að hertaka litla Ísland okkar. Við erum í hættu stödd, hey að fjúka, flóð ógna hrossum á túnum, og hellisheiðin ófær. Ég er orðlaus.

Matarpokinn minn liggur ósnertur út í bíl, ég keypti í matinn ætlaði austur til kallana og elda gott fyrir þá, en er föst í mosó. Er að hugsa um að hætta ekki lífinu svona rétt fyrir jól til að skreppa austur, þannig ef einhver vill taco þá er hann velkomin að kíkja í heimsókn, ég er með nóg :lol:

Jólin eru annars að koma. Og það á ekkert neinum smá hraða. Held að þetta sé hámarkshraði, jafnvel ólöglegt. Hef oftast þurft hálf að bíða eftir jólunum, en núna finnst mér þau þurfa að bíða eftir mér. En allar jólagjafir eru komnar í hús svo að ég hef það bara kósý í kveld og pakka inn gjöfum, borða taco (EIN), og hlusta á jólatónlist. Þá kemur jólaskapið sem ég hef verið að bíða eftir.

*****


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.12.2006 21:55:31 / raggaha

**Danmerkur færsla**

Góðan og blessaðan daginn..... Þá er danmerkur ferðin bbúúúin.....aahhh get nú ekki sagt annað en það sé soldið kósý að vera komin heim. Geta sofið í sínu eigin bæli, knúsað voffann sinn og bara já farið í góða íslenska sturtu :)

En Dene-Land var annars fínt.....smá punktar...

- Vaknað klukkan 4.00 og farið af stað, þá fyrir heilli viku...

 - Flughræðsla...í miklu magni :( - Komin til köben upp á hótel og strax út að verrrsla....guð hvað það var gaman.....:)

- Mánudagur og þriðjudagur vaknað 09.30 og beint í HM, elska þessa búð einum of mikiðððð....Hansi burðardýr kom reglulega að sækja poka hehe ;)

- Miðvikud....sex klukkutímar í rútu á leið til pabba og co....rassinn frekar þreyttur... - Heimsókn hjá pabba frá miðvikud- sunnud.....þar riðum við út í skóginum og höfðum það notó..

- Stór Varmblods hestur prófaður...bara gaman...kellan gat riðið "piaf" og gert stökkskiptingu á ferð..

- Harðsperrur í nára næstu 3 daga eftir....

- Lúin bein lenda á Íslandi í dag klukkan hálf 3...

- Föst á Keflavíkurflugvelli í 2 klukkutíma...þar sem bílinn minn neitar að fara í gang í rigningu..það reddaðist þó fyrir rest, hreint kraftaverk ;)

Mikið fjör og mikið gaman. En shit hvað ég er skuggalega flughrædd, þetta liggur við að vera sjúkt :( Ég held bara að flugvélin hrapi við hverja hreyfingu..eitthvað óörugg þarna uppi :) Gott er samt að ég sé að flytja austur þar sem ég hef þar 2 FATASKÁPA og heila skúffu til að geyma "mit toj" í....þar sem sem minn er að springa núna.....

Ég bið að heilsa ykkur í bili og hafið það gott.....kem með smá jule færslu bráðum...... Er það ekki Hurðaskellir í nótt....sofiði með eyrnatappa....luv....***


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
RSS tengill